Miðhús 4, Grafarvogi

Fréttir, myndir og fleira ................

Blogg

Eitt og annað

22.11.2007

Miðaldamenn - Bjarki Árnason

Miðaldamenn hafa hafa gefið úr geisladiskinn Miðaldamenn, þar sem fluttir eru textar Bjarka Árnasonar við eigin lög og erlend.
Þetta er flott framtak hjá þeim sem þarna standa að verki og frábært að það skuli vera komin á disk þessi lög og textar hans Bjarka. Flest þessara laga hafað hljómað í eyrum manns í tugi ára án þess að maður væri kannski alveg viss um eftir hvern viðkomandi lag og texti væri. En núna kemur þetta allt saman.
Útsetningar eru með nýju sniði og er það bara vel, diskurinn er vel áheyrilegur og það er ekki spurning að hann kemur við taugar í okkur Siglfirðingum. Þarna er lög eins og t.d. "Lindin tær", það frábæra lag "Siglfirðingur" sem ég held að ætti að vera þjóðsöngur okkar Íslendinga. Og nú er lag að breyta því, er ekki stór hluti þingmanna núna Siglfirðingar eða Siglufjarðar tengdir, drífa bara í þessu !!






Ég leyfði mér að skanna þessar myndir inn, framhlið og bakhlið á umslaginu. Og síðan bakhlið bæklings sem er inn í umslaginu með öllum textum og upplýsingum um flytjendur. Hönnuður umslags er Sigurður Kristinsson.
Allur réttur á hönnun og framsetningu er hjá Miðaldamenn 2007. No:001

Skrifað 22.11.2007 kl. 15:04 af SRS

3.11.2007

Tannkrem í Hagkaupum

Aldrei þessu vant fór ég með konunni í verslunarleiðangur í Hagkaup í Spönginnií gær. Svo sem ekkert til þess að tala um, en ég þurfti meðal annars að kaupa mér tannkrem af þeirri teguns sem hér er mynd af.



Nú ég tók eftir því að það var stillt fram nákvæmlega sömu vörunni í tveimur hillum, annarsvegar kostaði tannkremið
325 Kr. í neðri hillunni en hinsvegar Kr. 338 í efri hillunni. Og ég segi enn og aftur að þarna var um nákvæmlega sama tannkremið að ræða. Ég hugsaði með mér að ég skoði þetta þegar á kassann er komið til að greiða hvort verðið muni verða notað, því að eeins og gefur að skilja þá tók ég náttúrulega tannkremstúbuna sem kostaði Kr. 325, alltaf verið að spara. Jæja ég gleymdi svo að sjálfsögðu að athuga með hvaða verð var stimplað inn þegar við borguðum síðan innkaupin og það var ekki fyrr en ég var komin heim að ég mundi eftir þessu.
Og hvað haldið þið þá, ekki var verðið Kr. 325, ekki heldur Kr. 338 heldu var það orðið Kr. 349


Ég hafði nú samband við aðstoðarverslunarstjórnn og lét hann vita af þessu, það vantaði ekki að maðurinn var ákaflega kurteis og bauðst til að borga mér mismuninn á lægsta verðinu og því sem ég endanlega greiddi. Taldi að um mistök væri að ræða hjá starfsfólki við verðmerkingar. En ég borgaði samt sem áður Kr. 349 fyrir tannkremið og mér fannst þrátt fyrir skýringar að þetta væri nú aldeilis ekki í fyrsta skipta sem ég hefði þurft að borga meira en ég hefði átt að gera.
Það var eins og maður hefði verið svikinn. Hvað fer maður þarna oft á ári 50 sinnum ef það munar kannski vegna vitlausrar verðmerkinga Kr. 250 í hvert skipti þá gerir það Kr. 12.500 á ári. Halló lætur maður þetta virkilega yfir sig ganga.

Skrifað 3.11.2007 kl. 10:20 af SRS

1.11.2007

Andrea Bocelli

Fórum á tónleika með Andrea Bocelli í Egilshöll í gærkvöldi.



Það var virkilega gaman að þeim Ítalska, en frekar var hann nú daufur samt sem áður fyrir hlé. Trúlega þreyttur eftir ferðalag til Íslands. Það gæti allavegana verið opinber skýring.
En heldur lifnaði nú yfir kallinum eftir hlé. Bjargaði sér svo alveg fyrir horn með sínum bestu lögum eftir að hafa verið klappaður vel og lengi upp.Tók þrjú aukalög sem fyrir mig að minnsta kosti gerðu það að verkum að tímanum var vel varið í þessa tónleika hans.

Skrifað 1.11.2007 kl. 11:57 af SRS

1.8.2007

Siglufjörður

Komum hérna á laugardaginn 28. júli, rosalega gott veður eins og alltaf er á Siglufirði. Blankalogn og blessuð sólin hátt á lofti, frábært.

Skrifað 1.8.2007 kl. 17:45 af SRS

26.5.2007

Framsókn

Jæja, þá er komin ný stjórn á laggirnar, Sjálfstæðisflokkur og Samfylking.

Skrifað 26.5.2007 kl. 21:16 af SRS

3.5.2007

Arnarnes SI 70. SKnr. 1128

Ég hef verið að dunda mér við það að undanförnu að leita upplýsinga um Arnarnes SI 70.
Skipið var upphaflega smíðað í Beverley í Englandi í skipasmíðastöð Cook, Welton & Gimmel Co.Ltd. var nýsmíð hjá þeim númer 974. Skipð hét í upphafi Boston Wellvale og var smíðað fyrir útgerðafélagið Boston Deep Sea Fishing Co.  Ltd. í Fleetwood. Skipinu var hleypt af stokkunum þann 30 júní árið 1961.

Boston Wellvale FD 209.

Í júní 1962 þegar skipið var á veiðum við St. Kilda kviknaði í manníbúðum og urðu töluverðar skemmdir við það, engan áhafnarmeðlima sakaði.

Þann 25 nóvember 1966 var skipið selt til North Cape fishing Co. Ltd. í Grimsby.

22 desember 1966 strandaði skipið við Arnarnes í Ísafjarðardjúpi þar sem það var á leið til Ísafjarðar í kolvitlausu veðri til að láta gera við radar sem var bilaður. Öllum 17 áhafnarmeðlimum var bjargað í land.
Þann 8 ágúst var skipið selt til niðurrifs fyrir £ 150. Hinsvegar varð raunin sú að Stálskip í Hafnarfiðri eignaðist skipið og var það upphafið að velgengni þeirra hjóna Ágústar og Guðrúnar í útgerðarbransanu. Eftir að skipið komst í eigu Stálskipa var það nefnt Rán GK 42, Þetta var árið 1970.

Ýmsir eigendur hafa verið að skipinu síðan og kemur það fram síðar, en síðast var skipið í eigu Þormóðs ramma á Siglufirði sem seldi það síðan til Mexico þar sem ég sá það síðast árið 2001.

Skrifað 3.5.2007 kl. 20:55 af SRS

25.4.2007

Kristján Elíasson

Ég komst að því að Kristján Elíasson er farin að blogga, ég leyfði mér að taka af bloggsíðu hans textann sem er hér fyrir neðan. Þetta er frábært framtak hjá strákunum að koma þessu máli á legg, þ.e. að láta búa til líkan af Hafliða SI.
Svo er ég einnig viss um að frá Stjána eiga eftir að koma frábærar sögur og greinar, því Stjáni er mjög vel pennafær.
Það verður gaman að fylgjast með skrifum hans í framtíðinni.
Hérna kemur slóðin á bloggið hans http://kameldyr.blog.is/blog/kameldyr/

Í gær var ég á afar merkilegum fundi ásamt fáeinum félögum mínum frá Hafliðaárunum. Bjössi Birgis hafði fengið þá hugdettu í höfuðið að safna peningum til þess að láta smíða líkan af síðutogaranum Hafliða SI 2 og gefa Síldarminjasafninu á Siglufirði til minningar um þá menn sem á skipinu störfuðu. Þetta var svo sem ekki fyrsti fundurinn okkar, áður höfðum við hist á Aski og slafrað í okkur á meðan við sögðum sögur og svo var aðeins minnst á líkanið. Í gær hittumst við hjá Gunnari Trausta í húsakynnum Merkismanna og enginn matur til að dreifa huganum, utan nokkrir kexpakkar sem einn af félögunum tæmdi samviskusamlega. Líkan, eins og það sem við höfum í huga, er ekkert smáverkefni að smíða. Það verður um 1,5. metra langt og byggt eftir ströngustu kröfum næmra minninga, teikningum sem við höfum aflað okkur frá Sjóminjasafninu í Hull á Englandi og svo auðvitað ljósmyndum.  Til stendur að setja upp heimasíðu og þar verða settar inn sögur og upplýsingar um skipið, listi yfir þá menn sem verið hafa á skipinu og fleira. Við vonumst til þess að fá sem flesta til samstarfs við okkur um þetta þjóðþrifamál og að sem flestir taki upp budduna og gefi til verksins fáeinar krónur því þetta gerist ekki án þess að peningar komi við sögu enda gert ráð fyrir að svona líkan kosti allt að 2 milljónum króna.

En þetta er sem sagt að fara af stað og hlakka ég mikið til.

Skrifað 25.4.2007 kl. 21:14 af SRS

18.4.2007

Svona til að láta vita af sér

Ég mátti til með að setja smá lesningu hérna á síðuna hjá mér, svona til að láta vita af því að maður er svona að komast á kreik aftur eftir ýmsar hremmingar síðan í byrjun janúar.
Enn er ég nú ekki komin á fulla ferð aftur en geri nú ráð fyrir að það muni hafast eftir einhvern ekki voðalega langan tíma, en á meðan það nú stendur yfir er kannski möguleiki á því að maður setji nú kannski eitthvað á síðuna hérna.

Skrifað 18.4.2007 kl. 14:47 af SRS

11.2.2007

Uppfærslur á síðunni

Vegna viðhalds á eiganda síðunnar, þá verður ekki mikið um uppfærslur á næstunni. Ekki það að ég hafi verið duglegur við að uppfæra.

Vonandi verð ég svo miklu mun duglegri við að koma fréttum af mér og mínum á framfæri þegar fram á sumarið verður komið.

Skrifað 11.2.2007 kl. 15:50 af SRS

24.12.2006

Amælisgjafir

Í gærkvöldi var mér afhent afmælisgjöf frá þeim félögum mínu og þeirra fjöskyldum, Sverri Júlíussyni og Þóri bróðir mínum.

Eins og þeirra félaga er von og vísa var gjöfin ekki af lakari endanum, eðal Cognac frá honum Camus sjálfum, líklega hafa þeir tekið eftir því í gegnum tíðina félagarnir að mér finnst Congac ekki vont. En svo er það aftur spurningin hvort þeir hafa einhverjar skoðanir á því hvort mer finnist það of gott. Ég set þetta nú bara svona fram þar sem þetta eðal Cognac var kyrfilega rafsoðið inn í vírgrind og er ekki á nokkurn máta hægt að njóta veiga flöskunnar nema þá með því að skera í sundur vírgrinda með verkfærum sem ég ekki einu sinni á.

En það fylgdi nú með að á mínu næsta tug afmæli fengi ég í afmælisgjöf viðeigandi tól til að opna flöskuna, þannig að mér líður nú strax betur að hafa þá vitneskju. Ég má til með að benda á það, að á toppi grindarinnar er útfærð úr stáli mjög nákvæm stytta af mér, hún er svo nákvæm að fótaburður minn er þar sérstaklega tekin fyrir. Ég ætla ekki að útskýra það neitt frekar.

Að síðustu þá fylgdi gjöfinni vísa ein mikil, og efast ég um að annars eins kveðskapur hafi verið settur á blað (skinn) síðan Hávamál komu til, fylgir vísan hér á eftir:

Vinirnir fínu vösku biðu

veislu með drykkju dans

og mat

en dagarnir dimmu óðar

liðu

og draumar um veislu

voru bara plat

 

Því nískan þig langt frá

landinu dró

Þú lást þar í ofáti og sulli

þú verður á endanum

afgamalt hró

með aftur endann fullan

af gulli.

Skrifað 24.12.2006 kl. 10:09 af SRS

9.12.2006

Tónleikar í Háskólabíó

Fórum á tónleika með sinfóníunni á fimmtudagskvöldið, og er óhætt að segja að söngur Denyce hafi verið frábær.

Ferill Denyce Graves, sem er mezzosópran hefur verið ein óslitin sigurganga frá því að hún kom fyrst fram í Metropolitan óperunni í New York í hlutverki Carmen í samnefndri óperu árið 1996. Það hlutverk hefur hún síðan oft túlkað á stórbrotinn hátt í þekktustu óperuhúsum heims.

Denyce Graves hefur unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna og komið fram með mörgum af helstu hljómsveitum heims þar sem hún hefur unnið með stjórnendum á borð við Riccardo Chailly, Myung-Whun Chung, Charles Dutoit, Christoph Eschenbach, James Levine, Zubin Mehta, Lorin Maazel, Kurt Masur, Riccardo Muti, og Mstislav Rostropovich.

Denyce Graves kom fram á hátíðartónleikum við afhendingu friðarverðlauna Nobels árið 1999 í Osló.
Árið 2000 söng hún á "Tónleikum fyrir jörðina" sem haldnir voru í tengslum við umhverfisráðstefnu SÞ í Rio de Janeiro og var þeim útvarpað beint um allan heim. Hún söng við opinbera minningarathöfn í Washington DC um þá sem létu lífið 11. september árið 2001 en þeirri athöfn var útvarpað og sjónvarpað um allann heim. Denyce Graves ber nú titilinn Menningarsendiherra Bandaríkjanna.

Skrifað 9.12.2006 kl. 8:40 af SRS

2.12.2006

Minningar tónleikar um John Lennon

Fórum í gærkvöldi á tónleika í Háskólabíó, það voru tónleikar til minningar um John Lennon.

Þarna komu fram ýmsir söngvarar, ásamt með sinfóníuhljómsveit og fleiri. Kynnir var Sigurður Skúlason.

Þetta voru bara skemmtilegir tónleikar, kannski svolítið í þyngri kantinum en það slapp fyrir horn.

Páll Rósinkrans, Magnús Þór Sigmundsson, Jens Ólafsson og Haukur Heiðar Hauksson stóðu sig frábærlega vel í söng flutningi sínum, aðrir voru í sturtusöng. En flott framtak og í heild sinni mjög góð skemmtun.

Skrifað 2.12.2006 kl. 12:41 af SRS

5.11.2006

Pólitíkin, er alltaf söm við sig

Jón Gunnarsson í Jón Gunnar í sparibúningnum

Ætli hann hafi gleymt að skifta um föt kallinn, eða er Slysavarnarfélagið komið í pólitík, það vantar bara að fá mynd af hval þarna til að fullkomna hina heilögu þrenningu.

Skrifað 5.11.2006 kl. 11:50 af SRS

23.10.2006

Bankar og sparisjóðir

Það ríður ekki við einteyming vitleysan varðandi sölu úbús Glitnis á Siglufirði til Sparisjóðs Siglufjarðar á sínum tíma.

Ég var einn af mörgum Siglfirðingum sem ákvað að hafa mín viðskipti eftir sem áður í útbúi Glitnis á Siglufirði þrátt fyrir að vera fluttur frá staðnum, það var svo andskoti þægilegt að geta hring í Valda eða Hödda eða hvern sem var af starfsfólkinu og það var leyst úr öllum vanda samstundis, ekkert mál.

Nú en svo tók Glitnir upp á því að selja útibúið til Sparisjóðs Siglufjarðar og mig með auk allra hinna sem voru þarna viðskiptavinir, og þetta var bara tilkynnt si svona frá og með einhverjum degi þá ert þú orðin viðskiptavinur Sparisjóðsins. Ég hafði engar hugmyndir um að verða viðskiptavinur Sparisjóðins þannig að ég greip til ráðstafana til að vera búinn að koma mínum viðskiptum í aðra bankastofnun áður en að þessum degi kæmi sem var settur fram. Það gekk greiðlega og ég komin í viðskipti við annan banka og hefur það verið snuðrulítið að eiga við.

En nú bregður svo við að ég er farin að fá frá Sparisjóð Siglufjarðar sent í pósti debet kort og þar eru notuð bankanúmer sem ég var með á þeim tíma er ég var viðskiptavinur Glitnis á Siglufirði, hvað er eiginlega í gangi.

Hefur Sparisjóður Siglufjarðar virkilega aðgang að mínum reiknisnúmerum frá útbúi Glitnis á Siglufirði (dánarbú) þrátt fyrir að ég hafi verið búinn að skipta um viðskiptabanka áður en að töfradeginum kom. Það er að segja ég var búinn að skipta um viðskiptabanka áður en af sölu Glitnis á útibúinu á Siglufirði til Sparisjóðs Siglufjarðar kom, hvernig í ósköpunum getur þetta átt sér stað, já mér er spurn ???

Hvar er nú öll persónuverndin og bankleyndin og ég veit ekki hvað, getur þetta virkilega gengið svona fyrir sig að einn banki geti selt viðskiptavini sína ásamt með öllum upplýsingum um þá til annars banka og það er bara allt í lagi ???

Ég bið hér með forsvarsmenn Spaisjóðs Siglufjarðar að virða einkalíf mitt og láta þau gögn sem þeir hugsanlega hafa um viðskipti mín við útibú Glitnis á Siglufirði meðan það var til í ruslafötuna.

Hvað með aðra sem fluttu sig í viðskipta við til annara banka, hafið þið verið að lenda í þessu ???

Skrifað 23.10.2006 kl. 16:25 af SRS

Vafraðu um